Smartland Mörtu Maríu
|
Útlit
| Cover Media
| 5.2.2012
| 13:07
Hárflétta að hætti miðalda
Tískuspekingar um heim allan fylgjast grannt með stórstjörnunum í Hollywood nú þegar tími kvikmyndaverðlaunahátíðanna er runninn upp.
Á rauða dreglinum eru lagðar línurnar, bæði í fata- og hártísku, og þær listakonur sem þangað komast eru jafnan fyrirmynd annarra á sviði tískunnar.
Hárflétta, vafin um höfuðið í anda miðalda, hefur verið áberandi að þessu sinni og er óhætt að mæla með þessari nýju hártísku í vor og sumar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























