Splunkunýr maskari frá Dior svínvirkar

Mynd 1 af 2

Það er mikilvægt að eiga góðan maskara. New Look-maskarinn frá Christian Dior uppfyllir kröfurnar um hinn fullkomna maskara. Maskarinn heitir Diorshow og var innblástur hans sóttur í New Look-línuna sem kom hönnuðinum á kortið árið 1947. Sú tískulína þótti tímamótaverk og því ekki skrýtið að hönnuðir Dior skuli sækja í þessa tískulínu.

Burstinn á maskaranum er mjög smár sem gerir að verkum að það er nánast hægt að maskara hvert einasta augnhár án þess að klessa þau of mikið saman. Maskarinn lengir og þéttir augnhárin á glæsilegan hátt.

Í vortískunni er mikið gert úr augunum og ef konur eiga góðan maskara er oft nóg að setja bara örlítinn blýant í kringum augun. Auk þess er mikil eye-liner-tíska og þá verða augnhárin að vera vel masköruð.

Natalie Portman er andlit New Look-maskarans frá Dior.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is