Langar í brúnt hár

Mynd 1 af 6
Aniston með sína síðu ljósu lokka. MARIO ANZUONI

Jennifer Aniston fer seint á spjöld sögunnar fyrir síbreytilegt útlit. Hún hefur skartað sömu hárgreiðslunni frá því að hún sló í gegn í þáttaröðinni vinsælu Friends og birtist iðulega á rauða dreglinum klædd látlausum, svörtum, stuttum kjól. Nú finnst henni þó kominn tími til að breyta um útlit, skapa sér nýjan stíl og skipta um háralit.

Í viðtali við bandaríska tímaritið InStyle viðurkennir leikkonan fúslega að hún sé alltaf eins til fara á kvikmyndaverðlaunahátíðum með sína síðu ljósu lokka og í svörtum kjól.

„Það er kominn tími til að ég breyti útlitinu og klæðist einhverju öðru á rauða dreglinum,“ segir Aniston. „Ég hef kosið að fara öruggu leiðina í klæðaburði til að tryggja að mér líði vel og hef hárið alltaf eins. En nú langar mig til að breyta til, finna mér nýjan fatastíl og jafnvel láta dekkja hárið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is