Smartland Mörtu Maríu
|
Útlit
| mbl
| 14.2.2012
| 12:36
Fyrsta Victoria's Secret-verslunin á Íslandi
Fyrsta Victoria's Secret „Beauty & Accessories“-verslunin verður opnuð í Fríhöfninni á hlaupársdag, 29. febrúar 2012. Victoria's Secret er Íslendingum að góðu þekkt en fyrirtækið er í fararbroddi í smásölu á snyrtivörum og undirfatnaði fyrir konur.
Í versluninni, sem er 70 fm að stærð, verða seld ilmvötn, leðurvörur, töskur, bolir, nærbuxur og fylgihlutir. Hönnunin á versluninni er glæsileg og munu ljósmyndir af ofurfyrirsætum prýða hana.
Hægt verður að panta vörur í gegnum netið og sækja þær í verslunina þegar fólk á leið um Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























