Óþekkjanleg Victoria Beckham
Victoria Beckham lítur allt öðruvísi út í dag en hún gerði á unglingsárunum. Ætli hún hafi látið laga á sér nefið og kinnbeinin? Daily Mail leitaði til Angelicu Kavouni lýtalæknis á Harley Street-fegrunarstofunni í Bretlandi. Hún vildi meina að það væri ekki öruggt að frú Beckham hefði gengist undir lýtaaðgerðir.
„Þegar fólk leitar til mín læt ég það alltaf koma með myndir af sér frá unglingsárunum. Fólk sækist yfirleitt eftir því að fá fyrra útlit á ný,“ sagði Kavouni og játaði að hún ætti erfitt með að greina hvað frú Beckham hefði látið gera við sig.
„Mín 10 ára reynsla í faginu segir mér að breyttur lífsstíll Beckham hafi breytt útliti hennar mikið. Ég tel að það sé mun líklegra en að hún hafi farið í aðgerð.“ Með þessum orðum er Kavouni að vísa í holdafar frú Beckham en hún hefur sjaldan verið rýrari en akkúrat núna.
Victoria Beckham er með áberandi kinnbein og segir Kavouni að lögun þeirra breytist mikið þegar konur grennist. Auk þess segir hún að konur missi fitu í andlitinu eftir því sem árunum fjölgi. Hún segir að frú Beckham flýti fyrir ferlinu með því að vera svona grönn.
„Ég er þó ekki í vafa um að frú Beckham hefur farið í bótox. Það sést á húð hennar,“ sagði Kavouni.
























