Heillandi pastellitir með vorinu
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
í vorlínunni kom De Mey með margar nýjar og litríkar vörur til að gera langþráð vorið ennþá meira spennandi. Það er Kristjana Rúnarsdóttir, förðunarfræðingur fyrir Lancôme á Íslandi, sem á heiðurinn af forsíðuförðuninni. Við gefum Kristjönu orðið til að lýsa ferlinu:
„Í grunninn var farðagrunnurinn Effet Miracle settur á bæði módelin. Því næst kom farði sem heitir Teint Idole 24H sem er væntanlegur hjá Lancôme. Til að fullkomna áferðina á húðinni notaði ég nýja Teint Miracle-hyljarapennann á þau svæði sem þarf að laga. Penninn gefur ljóma, dregur úr húðlýtum og bætir húðina svo hún verður fullkomin. Hann er til í þremur mismunandi litum.“
Eitt litaspjald, alls konar förðun
Á augun á báðum módelunum voru notaðir sömu augnskuggarnir í nýju vorlitunum frá Lancôme. Í augnskuggalitaspjaldinu eru fjórir mismunandi litir sem nota má á mismunandi vegu og við öll tækifæri eins og sést á myndinni þar sem augnförðunin á módelunum er mjög ólík. Þannig náði ég að fanga tvenns lags ólíkt make-up með einu og sama litaspjaldinu, sem sýnir að hægt er að nota sömu litina á marga vegu. Það þarf bara að láta hugann reika og nota ímyndunaraflið.
Til að ná fram fullkomnum augnhárum var Hypnose Doll Eyes, nýi vinsæli maskarinn, settur á augnhárin. Hann lengir, greiðir úr og lyftir augnhárunum frá rót svo augun virka stærri. Fullkominn maskari fyrir þær sem vilja eðlilega áferð á augnhárunum.“ Augabrúnir voru svo skerptar með Sourcil Pro-augabrúnablýanti, en hann fæst í þremur mismunandi litum.
Bronsáferð á húðina
Star Bronzer mineral Mat-sólarpúður númer 04 var notað til að fá fallega sumarlega áferð á húðina.
„Ljóma-kinnalitinn La Roseraie Blush notaði ég svo á kinnarnar til að ná fram þessum fallega ferska rósarlit á húðina sem minnir á vorið. La Roseraie-púðrið er einstök formúla þar sem blandað er saman við perlumóðurögnum til að fanga ferskleika húðarinnar auk þess sem rósarliturinn í púðrinu gefur fallegri lit á kinnar.“ La Rosaraie-púðrið var líka notað á bringuna til að fá fallegt endurkast og ljóma á húðina. Að sögn Kristjönu er þetta púður algjör nauðsynjavara svo að allar konur geti skartað sínu fegursta í sumar.
Bjart vor á varirnar
Í vorlitunum frá Lancôme koma þrír nýir bjartir varalitir úr hinni vinsælu French Touch-línu. „Þessir varalitir endast einstaklega vel á vörunum, gefa næringu en eru samt silkimjúkir. Litirnir eru frá því að vera alveg ljósbleikir yfir í að vera ferskjulitaðir, svo allar konur ættu að geta fundið sumarvaralitinn sinn í Lancôme,“ segir Kristjana. Að auki koma þrír nýir litir í Color Fever-glossinu.
























