Besta leynitrixið í snyrtibuddunni
Það er ekki á hverjum degi sem það koma snyrtivörur á markað sem varla er hægt að lifa án. Undirrituð kann lítið með brúnkukrem að fara og hefur yfirleitt lent í hörmungum þegar slík krem eru annars vegar þá kom bronzing-gelið frá Sensai skemmtilega á óvart.
Þótt það gefi húðinni glóa og fallega áferð virkar það allt öðruvísi en hefðbundið brúnkukrem. Það er ekki mjög eftirsóknarvert að vera „alltaf“ eins og nýkomin heim frá Kanarí en það koma þó dagar þar sem gott er að luma á leynitrixi.
Það er einmitt þá sem bronzing-gelið kemur við sögu. Kremið hefur sömu áferð og brúnkukrem, er dökkbrúnt og eins og nafnið gefur til kynna með geláferð.
Hægt er að bera það á sig á mismunandi hátt. Þær sem eru mjög góðar í húðinni geta borið það á beint eftir dagkremið og fengið þannig ljóma í húðina. Það er hægt að bera það á sig með meikbursta en líka bara með fingrunum. Einnig má bera það á sig eftir að farði er borinn á húðina eða blanda gelinu saman við fljótandi farða. Það fer eftir hversu mikla glansáferð við viljum fá.
Bronzing-gelið frískar upp á húðina og framkallar ákaflega náttúrulegan ljóma sem er mjög eftirsóknarverður. Ekki síst þegar við förum aðeins að sjá til sólar og langar að skríða út úr vetrarhamnum án þess að verða of ýktar.
























