Krullujárnið heitt og greiðan í vasanum

Mynd 1 af 4
Bylgjur eru málið í hárið. Glen Krohn
Morgunblaðið Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is

Hártískan í sumar ber keim af tísku millistríðsáranna og einkennist af fallegum, mjúkum línum, bæði hjá konum og körlum,“ segja þær Birna Hermannsdóttir og Ragnheiður Björk Hreinsdóttir, eigendur hárstofunnar Eplisins í Borgartúni. „Áberandi er að það eru engar öfgar lengur, hvorki í klippingum né lit; ekkert oflitað hár eða grófar hárlengingar. Í vor og sumar verða allir með vel klippt og fallegt hár og ekkert kæruleysi í gangi.“

Talið berst að árshátíðargreiðslunni í ár og eru þær sammála um að hún einkennist af miklum kvenleika. „Bylgjugreitt hár tröllríður nú öllu og mjög kvenlegt útlit. Konur vilja mjúka liði í hárið, hvort sem það er sítt eða stutt, en til þess að greiðslan verði ekki of stíf eru endarnir hafðir frjálslegir eða hárið látið enda í fallegum hnút.“

Bylgjur og þungir þvertoppar

Þær stöllur segja sumartískuna mjög kvenlega. „Það er mikil skírskotun í gamlar bíómyndir og nægir þar að nefna leikkonuna Judy Garland. Það er svo mikill klassi yfir öllu í vor og sumar, bæði í klippingum og lit, og mikið um hreyfingu í hárinu, jafnvel bylgjur. Það er ekkert eitt í gangi heldur bæði sítt og stutt hár.

Þó er áberandi að hártoppar eru þverir og þungir; ef við eigum að nefna eina klippingu sem verður vinsæl þá er það bein lína fyrir ofan axlir og þungur toppur. Línur eru annars mjúkar og litirnir bjartir með ýmsum blæbrigðum. Klippingar eru þannig að hægt að breyta þeim auðveldlega með því að nota réttu efnin og hita krullujárnið.“

Vatnsgreiddir með vel snyrt skegg

Spurðar út í karlatískuna í vor og sumar segja Ragnheiður og Birna það sama upp á teningnum þar; mikil karlmennska einkenni sumarlínuna og gæti greinilegra áhrifa úr bíómyndum á borð við James Bond og The Artist.

„Línur eru útpældar, snyrtilegar en samt ekki of stífar. Karlar verða vel vatnsgreiddir, nota mikið gel og geyma greiðuna í vasanum. Vel snyrt skegg er líka að komast mikið í tísku, bæði sítt og stutt.“ Birna Hermannsdóttir og Ragnheiður Björk Hreinsdóttir, eigendur hárstofunnar Eplisins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Ljómaðu í rigningunni

Sólarpúðrið frá Chanel er röndótt og því hægt að stýra hversu mikið og dökkir litir ...
25.5. Sólarpúður hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Það er kannski ekkert skrýtið þar sem kvenpeningnum veitir stundum ekki af smáljóma í andlitið í rigningunni og rokinu. Meira »

Ilmaðu eins og vorsins blóm

Ilmvatnslínan Flora by Gucci er duðdómlega vel lyktandi og falleg.
17.5. Það væri óskandi að það væri hægt að finna lykt í gegnum tölvuskjáinn því þá mynduð þið skilja fullkomlega nýju ilmvatnslínuna frá Gucci. Meira »

Nýju sumarlitirnir frá OPI

Hot and Spicy.
18.5. Svarta shatter-naglalakkið fullkomnar verkið.  Meira »

Aðhaldshandleggir nýjasta nýtt

Aðhaldshandleggir.
16.5. Nú er ný aðhaldsflík komin á markað sem grennir handleggina svo um munar.   Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is