Trönuberjalitaðar varir hjá Gucci
Ítalska tískuhúsið Gucci sýndi dökka og dularfulla förðun þegar fyrirsæturnar þustu um tískupallana í gær. Förðunarmeistarinn Pat McGarthe segir að förðunin hafi átt að vera dökk en jafnframt rómantísk eða í stíl við hönnun Fridu Giannini hjá Gucci.
Mikil áhersla var lögð á varirnar sem voru trönuberjalitaðar eða dökkvínrauðar með mattri áferð. Augun voru minna máluð, eða minna skyggð en meiri áhersla lögð á löng og vel sköpuð augnhár, hvort sem það útlit fæst með augnháralengingu eða maskara. Fyrirsæturnar voru í fölari kantinum þegar þær stigu á svið.
Þær sem eru farnar að huga að haustförðuninni ættu því að fjárfesta í dökkum varalit og læra að maskara sig án þess að þurfa að horfa í spegil. Auk þess má ekki gleyma varalitablýantinum sem er að koma sterkur inn aftur. Varalitablýantur á að sjálfsögðu að vera í nákvæmlega sama lit og varaliturinn. Hann hjálpar okkur að forma varirnar og passar upp á að varaliturinn klínist ekki út um allt andlit. Þær sem hafa verið lengi í bransanum vita að það er alls ekki málið.
























