Andrea Maack fær fjárfesti

Mynd 1 af 2
Andrea Maack ilmvatnið.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu Andrea Maack Parfums (AMP ehf). AMP framleiðir gæðailmvötn sem eru verk myndlistarmannsins Andreu Maack. Búið er að setja á markað sex mismunandi ilmvötn og eru þau seld víðsvegar um heim í hágæðaverslunum. Hver ilmur á rætur að rekja til myndlistarverka og sýninga Andreu Maack og samspils þeirra við ilmvatnsgerð.

Stofnendur AMP eru Andrea Maack og Gísli Sverrisson en þau hafa náð góðum árangri á stuttum tíma í að markaðssetja vöruna bæði hérlendis og erlendis.

„Við hjá Nýsköpunarsjóði erum mjög ánægð með fjárfestinguna í Andreu Maack Parfums.  Það ánægjulegt að sjá öflugt fyrirtæki spretta upp úr listsköpun. Stofnendum AMP hefur tekist að selja vöruna út um allan heim og byggja upp öflugt alþjóðlegt netverk sem mun gagnast fyrirtækinu vel þegar kemur að frekari markaðssókn,“ segir Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.

Gísli Sverrisson, framkvæmdastjóri AMP efh., er himinlifandi að fá öflugan samstarfsaðila.

„Það er spennandi að fá öflugan samstarfsaðila inn í svona framsækið verkefni. Þetta á eftir að styrkja okkur á margan hátt enda gríðarlegur reynslubrunnur innan NSA. Á síðustu árum höfum við vaxið hratt og að fá stuðning sjóðsins á þessu stigi er ómetanlegt. Framundan er að stækka og styrkja stoðir fyrirtækisins, breikka vöruúrvalið og halda áfram í útrás,“ segir hann og Andrea Maack tekur í sama streng.

„Að fá NSA í lið með svona óvenjulegu og framsæknu verkefni er meiriháttar. Ilmirnir fæddust í gegnum listsköpun mína. Ilmirnir eru unnir í mjög óvenjulegu ferli og eiga allir sína sögu sem hefur haft mikið að segja við markaðssetningu vörunnar erlendis. Ég hlakka til að bæta við fleiri ilmum og öðrum vörum sem hafa verið lengi í þróun.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...