Búðu til þitt eigið salt-sprey í hárið

Fyrirsæturnar á sýnignu Frankie's Bikinis á tískuviku New York voru …
Fyrirsæturnar á sýnignu Frankie's Bikinis á tískuviku New York voru með fallega en tjásaða lokka sem kallaðir voru fram með salt-speyi. AFP

Þó að sumarið sé á enda þýðir það ekki að það sé bannað að líta út eins og þú sért nýkomin af ströndinni.

Tjásaðir lokkar og áreynslulaust hár verður nefnilega áfram vinsælt í haust en því útliti er auðvelt að ná fram með salt-spreyi í hárið. Þá er óþarfi að eyða fúlgum fjár í slíkt sprey því það er auðvelt að útbúa heima.

Blaðamaður Elle deildi nýverið sniðugri uppskrift að góðu salt-spreyi í hárið sem kallar fram þetta sumarlega og flotta útlit.

Það sem þú þarft:

  • tóma úðaflaska
  • einn bolli heitt vatn
  • 1-2 teskeiðar sjávarsalt
  • 1 matskeið kókosolía eða arganolía
  • ½ teskeið hárnæring
  • sletta af hárgeli

Blandaðu öllum innihaldsefnunum saman í flöskuna og hristu vel. Úðaðu þá blöndunni í rakt hárið og leyfðu því að þorna náttúrulega.

Gerist ekki einfaldara!

Salt-sprey í hárið gefur áreinslulausa en flotta útkomu.
Salt-sprey í hárið gefur áreinslulausa en flotta útkomu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál