Berglind Icey er andlit Vine de.la Vie

Berglind Icey er andlit Vine de.la Vie.
Berglind Icey er andlit Vine de.la Vie. Ljósmynd/David Walden

„Ég hef unnið með John Blaine celebrity hairstylist og David Walden í sitthvoru lagi við önnur verkefni, svo þeir voru spenntir að fá að vinna öll þrjú saman og völdu mig í verkefnið,“ segir Berglind Icey sem er andlit Vine de.la Vie 2015. Fyrirtækið sérhæfir sig í hár og húðvörum og hefur notið mikilla vinsælda vestanhafs. 

Berglind var mynduð í Los Angeles og hefur verkefnið mikla þýðingu fyrir hana. 

„Ég mun ferðast á þeirra vegum á næsta ári, og mun sitja fyrir í fleiri myndatökum fyrir línuna. Ég hef unnið við fyrirsætustörf í 22 ár svo er alltaf mjög þakklát að fá skemmtileg verkefni og vinna með frábærum snillingum. Ég ætlaði að vera löngu hætt. Var til dæmis að sýna á ný á New York Fashion Week í ár með 17 ára stelpum sem hefðu getað verið dætur mínar. Svo ég má vera þakklát fyrir langan feril,“ segir Berglind. 

Framundan eru spennandi tímar hjá Berglindi. Hún er á leið til Flórens og Toskana á Ítalíu og svo stoppar hún stutt á Íslandi eftir þá ferð á leið til baka til Los Angeles þar sem hennar bíða fleiri verkefni.

Hvað gerðir þú til að undirbúa þig fyrir myndatökuna? „Reyndar fyrir þessa töku fór ég í kóreyskt spa, notaði hæðirnar hérna í Bevery Hills í stað þess að fara á æfingu, drakk fullt af vatni og fór snemma að sofa.“

Berglind tekur sig vel út í myndunum fyrir fyrirtækið. Hár: …
Berglind tekur sig vel út í myndunum fyrir fyrirtækið. Hár: John Blaine Förðun: Iris Moreau Ljósmynd/David Walden
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál