Fyrirsætan Christy Turlington er þekkt fyrir unglegt og frísklegt útlit en hún er handviss um að fegurðin komi að innan. Turlington reykti á sínum yngri árum en sér eftir því, í dag hugsar hún um heilsuna. Hún lumar þá á nokkrum góðum fegrunarráðum sem hún deildi með lesendum FemaleFirst.co.uk.
Turlington kveðst vera afar hrifin af snyrtivörunum frá Maybelline. „Ég nota léttan hyljara frá Maybelline, hann heitir Instant Age-Rewind. Svo nota ég Maybelline Volume Express-maskarann og smágloss, þetta er allt og sumt. Ég vil ekki setja of mikið á húðina.
Ég trúi því að fegurðin komi að innan. Það hvernig fegurð er túlkuð í tímaritum hefur farið batnandi með árunum. Á níunda áratugnum vorum við með svo mikinn farða að mér fannst ég alveg hulin. Í dag er farðinn mínímalískari, það höfðar betur til mín. Ég trúi því að minna sé meira. Ég vil geta séð húðina.“
Turlington reykti á yngri árum en kveðst sjá eftir því. „Ég reykti sem unglingur, móðir mín sagði mér að hætta og hún hafði sko rétt fyrir sér. Ég hefði átt að hlusta á hana,“ segir Turlington.