Rauður varalitur selst best í desember

Sala á rauðum varalit eykst í desember samkvæmt upplýsingum frá …
Sala á rauðum varalit eykst í desember samkvæmt upplýsingum frá markaðsrannsóknafyrirtækinu Mintel.

Markaðsrannsóknafyrirtækið Mintel greindi nýverið frá því að sala á varalitum hefur aukist til muna á seinasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Mintel nær varalitasalan hámarki í desember en rauður litur virðist vera vinsælastur.

Að sögn talsmanns snyrtivörusviðs Giorgio Armani hefur sala á rauðleitum varalitum tvöfaldast í Bretlandi desember. „Bretar láta sig dreyma um rauð jól,“ sagði í tilkynningu frá fyrirtækinu.  

En fer rauður varalitur öllum? Förðunarfræðingurinn Lisa Eldridge segir „já!“. Rauður varalitur getur farið öllum vel að sögn Lisu en hún segir nauðsynlegt að allir finni þann lit sem fer þeim best. Lisa mælir með að nota varalitapensil þegar áberandi varalitur er borinn á varirnar því þannig endist hann mun lengur. Lisa lumar á ótal góðum ráðum hvað varðar rauðan varalit, hún deilir þeim með okkur í þessu myndbandi.

Förðunarfræðingurinn Lisa Eldridge veit hvað hún syngur.
Förðunarfræðingurinn Lisa Eldridge veit hvað hún syngur. youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál