Tvífari Kim er hvergi nærri hættur

Jordan James Parke elskar Kim og vill líta út eins …
Jordan James Parke elskar Kim og vill líta út eins og hún. Hann stefnir á að fara á aðgerð á rassi á næstunni. youtube.com

Einn helsti aðdáandi Kim Kardashian, Jordan James Parke, hefur nú þegar eytt um 19 milljónum króna í fegrunaraðgerðir en hann er hvergi nærri hættur. Næst á dagskrá hjá Parke er rassastækkun.

Parke stefnir á að fara í aðgerð á rassi á næstunni en Kim er þekkt fyrir að skarta stórum og lögulegum afturenda. „Ég elska rassinn hennar, hann er æðislegur. Þegar hún var á forsíðunni með rassinn úti þá fannst mér hún líta vel út, hún veitir innblástur,“ sagði hinn 23 ára Parke og vísaði í forsíðu Paper magazine sem kom út í nóvember í fyrra.

„Mig langar að verða eins stór og hún. Ég mun ekki fá mér ígræðslu. Ég hef verið að skoða líkamsmótun (e. body contouring), það er nokkuð vinsælt í Ameríku,“ sagði Parke í viðtali í breska spjallþættinum This Morning.

„Mig langar til að fara í fitusog á maganum og á bakinu. Ég er svo latur. Ég hreyfi mig aldrei þannig að mig langar í fitusog. Þá setja þau fituna í rassinn og þannig slærðu tvær flugur í einu höggi,“ sagði hinn hagsýni Parke.

Hefur eytt 19 milljónum í fegrunaraðgerðir

Jordan James Parke hefur gengist undir ýmsar óhugnanlegar meðferðir í …
Jordan James Parke hefur gengist undir ýmsar óhugnanlegar meðferðir í von um að líkjast Kim Kardashian.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál