Khloé Kardashian er gjörbreytt

Khloe Kardashian hefur grennst töluvert á undanförnum mánuðum og er …
Khloe Kardashian hefur grennst töluvert á undanförnum mánuðum og er orðin ljóshærð í þokkabót. Instagram

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian er gjörbreytt. Yngsta Kardashian-systirin hefur nú litað hárið á sér ljóst og grennst töluvert. Khloé er ánægð með breytinguna og hefur birt nokkrar myndir af sér á samfélagsmiðlum undanfarið. 

Khloé hefur stundað líkamsrækt af miklum móð undanfarið. „Fitness snýst ekki um að vera betri en einhver annar ... það snýst um að vera betri en þú varst,“ skrifaði Khloé við mynd sem hún birti á Instagram. Á myndinni sýnir Khloé flatan maga sinn.

„Þegar ég skoða gamlar myndir af mér skil ég að ég áttaði mig ekki á því hversu óheilbrigður lífsstíll minn var. Fólk elskar að kalla mig feita en það sem er magnað er að ég tel mig samt ekki hafa verið feita á þessum tíma.“

Khloé Kardashian hefur alltaf verið dökkhærð.
Khloé Kardashian hefur alltaf verið dökkhærð. mbl.is/COVER
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál