Notar svita til að móta hárið

Jennifer Aniston er með fallegt hár. Hérna er hún ásamt …
Jennifer Aniston er með fallegt hár. Hérna er hún ásamt kærasta sínum, Justin Theroux á Óskarsverðlaunahátíðinni. AFP

Leikkonan Jennifer Aniston er ekkert að stressa sig á að fara í sturtu til að þvo hárið eftir ræktina því hún segir svita nýtast vel til að móta hárið eins og um hárvöru sé að ræða.

„Nei, ég geri það ekki. Í alvörunni. Smásviti í hárið gerir það bara flott. Hann virkar eins og hárvara. Maður blæs bara hárið og það kemur vel út,“ sagði Aniston aðspurð hvort hún skolaði alltaf á sér hárið eftir ræktina.

Aniston notar sérstakt sjampó án sílikons frá merkinu Living Proof og þvær hárið á tveggja til þriggja daga fresti. „Sílikon er mesti skemmdarvargurinn í flestum sjampóum. Það safnast upp á hárinu með tímanum og gerir hárið hart þannig að það brotnar,“ sagði Aniston í viðtali við Fashionista magazine.

„Fólk var alltaf að segja: „Ekki þvo hárið á þér á hverjum degi.“ En það var ómögulegt vegna sílikonsins og olíunnar, þetta skapaði fituslikju á hárinu á innan við einum degi,“ útskýrði Aniston sem er hluthafi í Living Proof.

Jennifer Aniston notar sjampó frá Living Proof.
Jennifer Aniston notar sjampó frá Living Proof.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál