Skeggjuð kona íhugar nú að raka sig

Annalisa Hackleman er með skegg.
Annalisa Hackleman er með skegg. youtube.com

Skeggjaða konan Annalisa Hackleman er hamingjusamlega gift. Hún og eiginmaður hennar hafa verið gift í fimm ár og ætla bráðlega að skella sér í myndatöku í tilefni þess. Hackleman íhugar nú að raka andlit sitt fyrir myndatökuna því hún heldur að eiginmaður hennar laðist meira að henni þegar hún er laus við skeggið.

Þegar Hackleman var 13 ára greindist hún með rauðkornamergð sem veldur því meðal annars að hún er með óvenjulega mikinn hárvöxt, bæði á andliti og líkama. Hackleman hafði rakað andlit sitt í áraraðir þar til hún kynntist eiginmanni sínum sem hvatti hana til að leyfa skegginu að vaxa eftir að þau voru búin að vera saman í nokkur ár. Það hefur hún gert í nokkur ár en núna íhugar hún að raka sig fyrir sérstaka myndatöku. Innst inni trúir hún því að eiginmaður hennar myndi laðast meira að henni ef hún væri skegglaus.

„David styður mig og er sáttur við skeggið. Ég held að hann elski ekki skeggið mitt en hann elskar mig og það er það sem skiptir máli,“ sagði Hackleman í einum þætti af Strange Love sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni TLC.

Fór í laser-aðgerð sem virkaði ekki

Hackleman hefur verið ófeimin við að tjá sig um sjúkdóminn og afleiðingar hans. Fyrir nokkrum árum sagði hún frá því í viðtali við Beardspo.com að skeggið hefði valdið henni hugarangri þegar hún var unglingur. „Eftir að fólk fór að yfirheyra mig vegna skeggsins fann ég fyrir óöryggi. Móðir mín ákvað að ég þyrfti að fara í laser-aðgerð,“ útskýrði Hackleman. Hún segir laser-aðgerðina ekki hafa virkað sem skyldi og þess vegna fór hún að raka sig.

„Fyrir um þremur árum var ég farin að raka mig tvisvar á dag. Þetta var endalaus barátta,“ sagði Hackleman sem forðaðist að yfirgefa húsið sitt á þessum tíma og var kvíðin. „Sem betur fer hjálpaði eiginmaður minn mér og krafðist þess að ég gerði eitthvað í mínum málum,“ útskýrði Hackleman sem íhugar nú að raka skeggið aftur af sérstöku tilefni.

David og Annalisa Hackleman eru hamingjusamlega gift.
David og Annalisa Hackleman eru hamingjusamlega gift. youtube.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál