Hefur notað korselett linnulaust í sex ár

Skjáskot af Mail Online. Aleira Avendano er sérstök í útliti.
Skjáskot af Mail Online. Aleira Avendano er sérstök í útliti.

Korselett hafa náð miklum vinsældum að undanförnu eftir að stjörnur á borð við Kim Kardashian, Jessica Alba og Nicki Minaj fóru að auglýsa að þær notuðu korselett til að öðlast mjótt mitti.

En hin lögulega Aleira Avendano er löngu byrjuð að nota korselett og hefur tekið notkunina alvarlega. Mitti Avendano er 50 sentímetrar að ummáli en hún hefur notað korselett í 23 klukkustundir á dag í sex ár.

Læknar hafa varað Avendano við notkuninni en hún lætur það ekki stoppa sig. „Ég er algjörlega háð því að nota korselett og belti, ég sef meira að segja með þau á mér. Ég elska tilfinninguna og tek þau bara af í eina klukkustund á dag til að hvíla mig og þvo mér.“

Hin 25 ára Avendano byrjaði að nota korselett þegar hún var unglingur. Seinna gekkst hún svo undir brjóstastækkun og notar í dag brjóstahaldara í stærð 34DD. Avendano kann að meta athyglina sem líkamsvexti hennar fylgir. „Fólk stoppar og starir. Ég fæ athygli hvert sem ég fer. Fólk kallar á eftir mér úti á götu, það trúir ekki að líkami minn sé raunverulegur.“

Læknar vara við notkun korseletts

Avendano segist hafa verið lengi að venjast korselettinu. „En eftir smástund varð þetta mér nauðsynlegt og þegar ég var ekki með korselett fór mig að klæja. Ég kann að meta þrýstinginn. Þetta truflar mig ekki.“

Eins og áður sagði hafa læknar varað Avendano við og sagt hana eiga á hættu að valda alvarlegum skemmdum á líkama sínum. „Mín skoðun en sú að hún ætti að hætta samstundis. Guði sé lof að hún hefur ekki valdið neinum skaða enn sem komið er en hún ætti að hætta áður en það verður of seint,“ sagði læknirinn Andrés Ruiz í viðtali við Daily Mail.

Avendano sagði þó frá því að hún hefði ekki aðeins notað korselett til að öðlast þennan óvenjulega vöxt heldur stundar hún einnig líkamsrækt og borðar hollt. „Ég borða litla skammta, aðallega eggjahvítur, ananas, ávexti og smákjöt. Svo geri ég magaæfingar, lyfti lóðum og bara hvað sem er.“ Avendano viðurkenndi einnig að hún hefði gengist undir nokkrar fegrunaraðgerðir. „Ég hef látið breyta nefi mínu og brjóstum þrisvar sinnum. Ég hef líka fengið fyllingar í rassinn og farið í fitusog.“

Avendano vill þó koma því á framfæri að hún hefur ekki látið fjarlægja úr sér rifbein. „Sumir segja mig hafa farið í of margar aðgerðir og að ég sé ekki með rifbein. Það er rangt.“

Nýj­asta æðið í Hollywood er „waist train­ing“

Skjáskot af Mail Online. Aleira Avendano hefur notað korsilett í …
Skjáskot af Mail Online. Aleira Avendano hefur notað korsilett í sex ár.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál