Birti fyrsta myndbandið eftir mikla umhugsun

Förðunarfræðingurinn Fanney Skúladóttir er komin á YouTube.
Förðunarfræðingurinn Fanney Skúladóttir er komin á YouTube.

 „Ég er búin að sitja föst yfir förðunarmyndböndum á YouTube í mjög langan tíma en ég hef aðallega verið að horfa á stelpur frá Bandaríkjunum og Ástralíu. Mér þótti alltaf vanta fleiri íslenska förðunarbloggara á YouTube. Mig hefur langað til að gera mitt eigið myndband á íslensku í langan tíma en aldrei látið verða af því fyrr en nú,“ segir förðunarfræðingurinn Fanney Skúladóttir sem nýverið birti sitt fyrsta förðunar-kennslumyndband á netinu.

„Viðbrögðin hafa verið ótrúlega góð og mun betri heldur en ég upphaflega bjóst við. Ég hef fengið ýmsar ábendingar um kennslumyndbönd sem stelpur vilja fá að sjá á íslensku, þannig að það eru strax fleiri myndbönd komin í vinnslu. Ég ákvað að hafa fyrsta myndbandið frekar einfalt þar sem ég sýni mína daglegu förðunarrútínu en í framhaldinu ætla ég að koma með ítarlegri kennslumyndbönd sem stelpur geta haft til hliðsjónar þegar þær eru að farða sig sjálfar. Það verður bara spennandi að prófa sig áfram í þessu og búa til eitthvað meira,“ útskýrir Fanney sem sjálf lærði mikið af því að horfa á kennslumyndbönd á netinu.

Var feimin við að birta myndbandið sitt á netinu

„Ég lærði gríðarlega mikið af förðunarmyndböndum á YouTube en það var alltaf draumur að taka áhugamálið skrefinu lengra og fara í förðunarskóla. Það var ekki fyrr en rétt fyrir síðustu jól sem ég tók þá ákvörðun að ná mér í diplóma en ég útskrifaðist sem förðunarfræðingur í mars síðastliðinn úr Reykjavík Makeup School. Ég hvet alla sem hafa áhuga á að fara í slíkt nám til að láta drauminn rætast, þetta er klárlega eitt af því besta sem ég hef gert.“

Fanney segist hafa verið á báðum áttum með hvort hún ætti að birta fyrsta myndbandið á netinu. „Ég var mjög efins og þurfti að fá smá hvatningu frá mínum bestu vinkonum eftir að hafa sýnt þeim myndbandið. Með því að birta myndbandið var ég að fara langt út fyrir þægindarammann minn. Maður hefur alltaf pínu áhyggjur af því hvað öðrum finnst, en það sem skiptir mestu máli er að gera það sem maður elskar og hefur gaman af,“ segir Fanney að lokum.

Áhugsamir geta fylgst með Fanneyju á Facebook-síðunni hennar en þar mun hún birta förðunarmyndböndin sín. Á meðfylgjandi myndbandi sýnir Fanney okkur hvernig hún farðar sig dags daglega.

Förðun eftir Fanneyju Skúladóttur.
Förðun eftir Fanneyju Skúladóttur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál