Þessa stundina þykir afar flott að vera með „dad bod“ eða „pabbalíkama“ samkvæmt slúðurpressunni vestanhafs. Það „lúkk“ felur í sér að vera með smá bumbu, loðna bringu, skegg og jafnvel smá karlabrjóst. Það er enginn annar en leikarinn Leonardo DiCaprio sem varð til þess að þetta útlit þykir eftirsóknarvert en hann er mikill hjartaknúsari og slær sér aðeins upp með ofurfyrirsætum.
En þessir flottu karlmenn ætla greinilega ekki að eltast við tískustraumana og næla sér í eitt stykki pabbalíkama. Það eru eflaust margir þarna úti sem styðja ákvörðun þeirra enda eru þeir virkilega flottir alveg eins og þeir eru. Blaðamaður People tók listann saman.