Þakkar háum hælum fyrir bossann

Söngkonan Kylie Minogue er með flottan rass og hún þakkar …
Söngkonan Kylie Minogue er með flottan rass og hún þakkar háum hælum fyrir það. AFP

Söngkonan lögulega Kylie Minogue þakkar himinháum hælum og góðri lýsingu fyrir fræga rassinn sinn sem þykir afar flottur.

Rass Minogue vakti mikla athygli í myndbandinu við lagið Spinning Around en í því klæddist hún gylltum stuttbuxum. Hún segir rass sinn líklegast hafa „sjálfstæða tilveru“. „Ég hugsa stundum um hann sem eitthvað sem er algjörlega aðskilið mér,“ sagði söngkonan í viðtali við Mail. Þá sagði hún jafnframt að rass sinn væri í laginu eins og hann væri vegna þess að hún hefði varið miklum tíma í að dansa um á háum hælum sem reyndi mikið á. „Ef ég þyrfti að útskýra fyrir einhverjum við hvað ég starfa þá myndi ég örugglega segjast vera áhættuleikari á háum hælum.“

Minogue segir lýsinguna líka skipta öllu máli þegar hún berar bossann. „Þegar ég fer í myndatökur þá sé ég alltaf til þess að ég og ljósamaðurinn séum bestu vinir,“ útskýrði Minogue sem er á lausu þessa stundina.

„Mig langar til að finna einhvern. Ég er rómantísk. Ég er ekki hefðbundin. Ég held að mig hafi aldrei dreymt um brúðkaup eða brúðarkjól en ég nýt þess að vera ástfangin.“

Kylie Minogue klæddist gylltum stuttbuxum í myndbandinu við lagið Spinning …
Kylie Minogue klæddist gylltum stuttbuxum í myndbandinu við lagið Spinning Around.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál