Sýnir hversu mikill máttur förðunar er

Nikkie heldur úti YouTube-rásinni NikkieTutorials.
Nikkie heldur úti YouTube-rásinni NikkieTutorials. youtube.com

Máttur förðunar er mikill og það sýnir og sannar förðunarfræðingurinn Nikkie í meðfylgjandi myndbandi. Nikkie elskar að mála sig og skammast sín ekkert fyrir það. „Undanfarið hefur mér fundist eins og það sé næstum því glæpur að elska að farða sig,“ segir Nikkie í myndbandinu áður en hún farðar hálft andlit sitt og sýnir áhorfendum hversu mikill máttur förðunarvara er.

Síðan Nikkie birti myndbandið hefur hún komið ákveðinni herferð af stað og nú eru ótal konur farnar að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum með hálft andlitið farðað. Þessar myndir má finna undir kassamerkinu #thepowerofmakeup á Instagram.

Með myndbandinu vill Nikkie minna fólk á að hafa gaman af förðun án þess að skammast sín.

 

Það eru margir farnir að taka þátt í herðferð Nikkie.
Það eru margir farnir að taka þátt í herðferð Nikkie.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál