Rauður augnskuggi getur verið klæðilegur

Tanya Burr notar rauðan augnskugga í sínu nýjasta kennslumyndbandi.
Tanya Burr notar rauðan augnskugga í sínu nýjasta kennslumyndbandi. youtube.com

YouTube-stjarnan Tanya Burr kennir áhorfendum sínum að nota rauðan augnskugga í sínu nýjasta myndbandi. Já, rauður augnskuggi getur verið klæðilegur og Burr sýnir það og sannar.

Burr notar augnskuggann Cranberry frá MAC í myndbandinu en hann er einn af hennar uppáhaldsaugnskuggum. „Það eru margir sem myndu aldrei velja þennan augnskugga í búðinni,“ segir Burr sem viðurkennir að liturinn geti virkar fráhrindandi við fyrstu sýn.

Burr fékk innblástur frá raunveruleikastjörnunni Khloe Kardashian við gerð myndbandsins en hún hefur gjarnan skartað rauðleitri augnförðun undanfarið.

Rauðleitir augnskuggar eru vinsælir um þessar mundir. Loréal, MAC og …
Rauðleitir augnskuggar eru vinsælir um þessar mundir. Loréal, MAC og Smashbox.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál