Myndi aldrei fá sér bótox á meðgöngunni

Kim Kardashian kveðst ekki nota fyllingarefni eða bótox á meðan …
Kim Kardashian kveðst ekki nota fyllingarefni eða bótox á meðan hún er ólétt. Instagram

Andlit raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian hefur verið mikið í umræðunni en hún lítur út fyrir að hafa gengist undir einhverjar fegrunaraðgerðir á undanförnum misserum. Einhverjir netverjar segja augljóst að Kim sé með bótox og fyllingarefni í andlitinu. En Kim, sem er ófrísk að sínu öðru barni, heldur því fram að hún myndi aldrei fá sér fyllingarefni á meðgöngunni.

„Nei, ég fæ mér ekki bótox eða fyllingarefni á meðgöngunni eins og sum slúðurblöð hafa greint frá. Þú þarft að vera verulega brenglaður til að leggja líf ófædds barns þíns í hættu,“ skrifaði Kim sem vill meina að breytingarnar á andliti hennar stafi af bjúg.

„Allir sem hafa verið óléttir eða fitnað vita að andlitið breytist. Nefið á mér stækkar, kinnarnar verða bústnar og varirnar þrútna,“ útskýrði Kim á Instagram.

Hvað er að ger­ast með and­lit Kim?

Andlit Kim þykir hafa breyst mikið undanfarið.
Andlit Kim þykir hafa breyst mikið undanfarið. Skjáskot af E!.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál