„Mér finnst ég samt líta vel út á vinstri myndinni“

Khloe birti þessar samanburðarmyndir á Instagram í gær.
Khloe birti þessar samanburðarmyndir á Instagram í gær. Instagram

Raunveruleikastjarnan Khloe Kardashian prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Complex. Á forsíðunni er Khloe, sem hefur verið dugleg í ræktinni undanfarið, fáklædd og olíuborin. Ótal fylgjendur hennar á Instagram vildu meina að myndirnar af henni væri „fótósjoppaðar“ út í hið óendanlega en Khloe var fljót að þagga niður í þeim sem gagnrýndu hana. 

Í gær birti Khloe þessar samanburðarmyndir á Instagram. Myndin til vinstri er upprunaleg mynd úr myndavél ljósmyndarans, en Khloe tók mynd af myndavélinni á tökudegi. Myndin til hægri er sú sem birtist í tímaritinu, þar er búið að fjarlægja skugga og slétta lítillega úr húðinni.

„Þessi er fyrir ykkur hatursmennina sem viljið ekki gefa mér ögn af viðurkenningu fyrir þá líkamsrækt sem ég hef stundað daglega," skrifaði Khloe meðal annars. „Já, húðin er slétt og skuggarnir voru fjarlægðir en mér finnst ég samt líta vel út á vinstri myndinni.“

Khloe Kardashian er á forsíðu Complex.
Khloe Kardashian er á forsíðu Complex. Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál