Þetta myndband sem hin tvítuga Stevie Miller birti á Facebook og Youtube er ekki fyrir viðkvæma. Í myndbandinu má sjá hrædda Miller toga pöddur út úr förðunarsvampinum sínum og kúgast um leið.
Miller varð var við eitthvað svart í förðunarsvampinum sínum. Hún náði í plokkara og dró aðskotahlutinn út en komst þá að því að pöddur höfðu komið sér vel fyrir í svampinum. Þess má geta að Miller kveðst ekki hafa átt svampinn lengi áður en pöddurnar gerðu vart við sig.
Síðan að Miller birti myndbandið ógeðslega á Facebook hefur það fengið um 815.000 áhorf. Það er um að gera að passa upp á hreinlætið þegar það kemur að förðunartólum og snyrtivörum.