Fullkomnar krullur með uppþvottasvampi

Hér má sjá Charmie Jane með fallegu krullurnar.
Hér má sjá Charmie Jane með fallegu krullurnar. Ljósmynd/Samsett mynd

Förðunarbloggarinn Charmie Jane deildi á dögunum afar skemmtilegu ráði með lesendum sínum um það hvernig hægt sé að fá fullkomnar krullur án þess að fjárfesta í krullujárni.  

Það er óhætt að segja að Jane sé afar hugmyndarík en til þess að ná hinum fullkomnu krullum notaði Jane uppþvottasvampa, festi þá í hárið og svaf með þá yfir nótt. Útkoman eru náttúrulegar og fallegar krullur.

Hér má sjá Jane koma svömpunum fyrir í hárinu.
Hér má sjá Jane koma svömpunum fyrir í hárinu. Ljósmynd/Instagram @charmiejanee

Til þess að útkoman verði sem best verða svamparnir að vera þurrir. Jane fór síðan yfir það í nokkrum skrefum hvernig svamparnir eru festir í hárið. Hún byrjar á því að rúlla hárinu í kringum svampinn. Því næst pressar hún svampinn saman fyrir miðju og festir hann síðan með teygju.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál