Faldi skjallblettina í 10 ár

Hér má sjá hvernig Rice felur blettina með farða.
Hér má sjá hvernig Rice felur blettina með farða. Ljósmynd/Instagram @breannerice

Fyrirsætan Breanna Rice greindist með sjaldgæfan húðsjúkdóm þegar hún var nítján ára gömul. Í andliti Rice eru nokkrir skjallblettir en þeir orsakast af því að líkaminn ræðst á litafrumurnar í líkamanum og skilur eftir þessa litarefnalausu bletti.

Í tíu ár hefur Rice falið blettina með alls kyns förðunarvörum fyrir öllum nema foreldrum sínum. Á endanum fékk fyrirsætan þó nóg af þessum feluleik og ákvað að opna sig um baráttuna við sjúkdóminn í von um að veita öðrum styrk og hvetja fólk til þess að vera ánægt með sjálft sig, hvernig sem það lítur út.

Myndirnar án farða birti Rice á Instagram-síðu sinni.

No one can be you but YOU✨ Embrace what makes you different and unique #vitiligo

A photo posted by Breanne💗Rice (@breannerice) on Jul 20, 2016 at 6:51pm PDT




Rice hefur falið blettina fyrir öllum nema foreldrum sínum.
Rice hefur falið blettina fyrir öllum nema foreldrum sínum. Ljósmynd/Instagram @Breannerice
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál