Förðunarbloggarinn og youtube-stjarnan Farah Dhukai er þekkt fyrir fjörugt og fjölbreytt ímyndunarafl sitt. Á dögunum deildi hún með lesendum sínum skemmtilegri aðferð til þess að laga þurrt og skemmt hár.
Dhukai hvetur lesendur sína til þess að skyggnast inn í ísskáp en inni í honum megi finna ýmislegt gagnlegt eins og til dæmis majónes sem getur gert mikið fyrir hárið.
Í myndbandinu segir Dhukai að í majónesi séu öll mikilvægustu innihaldsefnin til þess að næra hár; egg, edik og olía. Hún byrjar á því að setja majónesið í þurrt hárið og lætur það síðan liggja í hárinu í um það bil 30 mínútur. Þá skolar hún það úr með sjampói. Útkoman er mjúkt og heilbrigt hár að sögn Dhukai sem telur majónesið virka líkt og djúpnæringu.