Einfalt ráð gegn gulum nöglum

Flestir vilja skarta snyrtilegum nöglum.
Flestir vilja skarta snyrtilegum nöglum. Ljósmynd / Getty Images

Flestar konur vilja skarta fallegum og snyrtilegum nöglum, hvort sem þær eru naglalakkaðar eður ei.

Neglurnar eiga þó til að gulna undan naglalakki, sem aftur getur orðið til þess að leiðinlegur vítahringur fer í gang.

Það er þó til sérlega einfalt, fljótlegt og ódýrt ráð til að fá neglurnar til að endurheimta sinn upprunalega lit. Nefnilega tannkrem, líkt og fram kemur í umfjöllun Women's Health.

Berðu örlítið tannkrem á hverja nögl og nuddaðu með gömlum tannbursta. Láttu tannkremið síðan bíða á nöglinni í nokkrar mínútur áður en það er skolað af.

Það gæti þurft að endurtaka leikinn nokkrum sinnum áður en neglurnar verða glansandi hreinar.

Tannkrem er til margra hluta nytsamlegt.
Tannkrem er til margra hluta nytsamlegt. Ljósmynd / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál