Farðanir innblásnar af Kanye West

Þessi förðun er innblásin af plötunni Late Registration.
Þessi förðun er innblásin af plötunni Late Registration. Ljósmynd/Instagram @sarahkhan_

Förðunarbloggarinn Sarah Khan elskar allt sem viðkemur förðun. Þá er hún einnig forfallinn aðdáandi rapparans Kanye West. Khan ákvað að sameina þessi tvö áhugamál sín með því að búa til farðanir innblásnar af plötum rapparans.

Farðanirnar hafa vakið mikla athygli og hefur innleggjum hennar á Twitter verið deilt í hundraðavís.

„Ég elska Kanye West og ég elska förðun, svo ég ákvað að reyna að blanda þessum tveimur uppáhaldshlutum mínum saman og búa til farðanir innblásnar af plötum Kanye. Fyrsta förðunin var innblásin af plötunni The College Dropout. Sú förðun vakti talsverða athygli og þá fór fólk að hafa samband við mig og bað mig um að gera farðanir innblásnar af öðrum plötum,“ segir Khan í viðtali við Cosmopolitan.

Farðanir Khan hafa vakið mikla athygli.
Farðanir Khan hafa vakið mikla athygli. Ljósmynd/Instagram @sarahkhan_

Spurð hvernig hún fari að því að hanna farðanirnar eftir plötunum segist Khan velja augnskugga út frá lit plötunnar. „Vörurnar sem ég nota hvað mest eru Morphe-augnskuggar, NYC blautur eyeliner, LA Girl Pro-hyljari og Vegas Nay Grand Glamour-augnhár,“ segir Khan.

Förðunin innblásin af plötunni Late Registration er í uppáhaldi hjá Khan. „Ég myndi klæðast þeirri förðun en sleppa tárunum fyrir partý.“








mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál