Nýja Naked pallettan gerir allt vitlaust

Hér má sjá augnskuggana í allri sinni dýrð.
Hér má sjá augnskuggana í allri sinni dýrð. Ljósmynd / skjáskot Instagram

Urban Decay greindi frá því að von væri á nýrri Naked-augnskuggapallettu og skemmst er frá því að segja að netið hafi farið á hliðina.

Augnskuggarnir hafa notið gríðarlegra vinsælda hjá förðunarfræðingum, sem og skvísum almennt, og því voru tíðindin mörgum mikið gleðiefni.

Urban Decay greindi frá fréttunum á Instagram-síðu sinni, þar sem sjá má myndir af nýju augnskuggunum sem fáanlegir verða vestanhafs frá 18. september næstkomandi.

„Við kynnum til leiks nýjasta fjölskyldumeðliminn í Naked-línunni. Naked Ultimate Basics,“ segir í færslunni sem halaði inn þúsundum „læka“ á núll einni.

Þá greindi fyrirtækið einnig frá því að með nýju augnskuggunum væri það að koma til móts við aðdáendur sem hefðu gjarnan viljað fá matta augnskugga í safnið.

„Þegar við segjum að við hlustum á ykkur meinum við það. UD-fíklar hafa verið að grátbiðja okkur um fleiri matta augnskugga á samfélagsmiðlum, og við létum verða af því.“

Introducing the newest member of the Naked lineup... Naked Ultimate Basics!! #YouLookBetterNaked #NakedUltimateBasics 💜

A photo posted by Urban Decay Cosmetics (@urbandecaycosmetics) on Aug 15, 2016 at 6:12am PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál