Hræódýr heimatilbúinn baugabani

Auðvelt er að útbúa sitt eigið augnserum.
Auðvelt er að útbúa sitt eigið augnserum. Ljósmynd / skjáskot Youtube

Augun eru gluggar sálarinnar og allt það. Það er því skemmtilegra að umgjörðin sé ljós, lifandi, slétt og felld.

Augnkrem geta kostað annan handlegginn, en auðvelt er að galdra fram ýmsar tinktúrur úr hráefnunum í eldhúsinu.

Popsugar deildi uppskrift af „serum“ sem á að draga úr bólgum, en innihaldsefnin eru eingöngu fjögur.

Það sem til þarf:

Kaffikorgur

Möndluolía

Vínsteinsolía (e. grapeseed oil)

E-vítamín olía

Koffeinið úr kaffinu eykur blóðrásina og dregur úr þrota, möndluolía á að lýsa upp augnsvæðið, vínsteinsolían á að vinna gegn hrukkum og E-vítamín er andoxunarefni.

Leiðbeiningar má sjá hér fyrir neðan.

Snyrtivörur þurfa ekki alltaf að kosta annan handlegginn.
Snyrtivörur þurfa ekki alltaf að kosta annan handlegginn. Thinkstock / Getty Images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál