Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian deildi nýverið með lesendum bloggsins hennar hvaða snyrtivörur hún notar til að fríska upp á útlitið á ferðalögum. Þá kom í ljós að meðal þess sem hún notar er augnkremið frá Skyn Iceland.
Kim byrjaði færsluna á að segja hversu mikið hún hefur þurft að ferðast undanfarið. „Og ég pakka þessu alltaf. Ég sver, þetta er æði.,“ skrifaði hún.
Til að draga úr bólgum á augnsvæðinu notar hún Hydro Cool Firming-augngelið. Og svo til að koma í veg fyrir dökka bauga notar hún Skyn Iceland Relief-augnkremið. Annað sem Kim nefndi í færslunni var t.d. líkamsúði með lavender-lykt frá Aura Cacia. Svo þambar hún te frá Yogi.
Þess má geta að Skyn Iceland-vörurnar eru framleiddar m.a. úr íslensku hráefni og er innblásið af íslensku náttúrunni.