Opinberar leyndarmálið að baki útlitinu

Griffin hóf feril sinn sem fyrirsæta fyrir þremur árum.
Griffin hóf feril sinn sem fyrirsæta fyrir þremur árum. Ljósmynd / skjáskot Daily Mail

Hin 56 ára gamla Nicky Griffin varð á dögunum elsta konan til að sitja fyrir hjá tímaritinu Sports Illustrated, en hún hóf fyrirsætuferil sinn fyrir þremur árum.

Griffin segist hugsa vel um sig, en hún er alfarið á móti bótoxi og öðrum fegrunaraðgerðum enda segist hún vilja sjá hvernig andlitið á henni lítur raunverulega út.

Griffin segir vatnsdrykkju, heilsusamlega lifnaðarhætti og hreyfingu vera lykilinn að útliti hennar.

„Ég er mjög heppin því mér finnst skyndibiti ekki góður og þegar ég fór að notast við safapressu fyrir nokkrum árum hætti mig að langa í sætindi. Ég ráðlegg öllum á mínum aldri að fá nægt ferskt loft og drekka mikið af grænu tei,“ sagði Griffin í viðtali við Daily Mail.

Þá segist Griffin einnig borða mikið af lárperum, eggjum og laxi, auk þess sem hún byrjar daginn á því að drekka heitt vatn með sítrónu, hafragraut, hnetum og ávöxtum.

Frétt mbl.is: „Lífið byrjar eftir fimmtugt“

Frétt mbl.is: Sú elsta sem birtist í Sports Illustrated

Myndirnar úr Sports Illustrated af Nicola Griffin hafa vakið mikla …
Myndirnar úr Sports Illustrated af Nicola Griffin hafa vakið mikla athygli. Ljósmynd / Swimsuits for all
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál