Hirvonen hefur forustuna í Japan

Mikko Hirvonen hefur sig til flugs í Japan.
Mikko Hirvonen hefur sig til flugs í Japan. Reuters

Finninn Mikko Hirvonen, sem ekur Ford Focus, hefur forustu eftir tvo keppnisdaga af þremur í Japansrallinu. Hirvonen hefur 38,2 sekúndna forskot á Spánverjann Dani Sordo og 1,51 mínútu forskot á Norðmanninn Henning Solberg. Bæði Finninn Marcus Grönholm og Frakkinn Sébastien Loeb, sem berjast um heimsmeistaratitilinn í rallakstri, eru úr leik.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert