Jón Íslandsmeistari í torfæru
Jón Örn Ingileifsson á bílnum Kórdrengnum varð Íslandsmeistari í torfæru eftir góðan sigur í Stapafelli í gær. Var þetta fimmti sigur Jóns í sumar en hann hafði 15 stiga forystu á Hafstein Þorvaldsson í 2. sæti um Íslandsmeistaratitilin fyrir keppnina í Stapafelli. Þetta kemur fram á vefnum tidindin.is.
Jóhann Rúnarsson á Trúðnum, sem var í 3. sæti um Íslandsmeistaratitilinn, tók einu veltu keppninnar í 6. braut en myndasyrpa frá keppninni er birt á vefnum tidindin.is.
Úrslit torfærukeppninnar urðu þessi, ásamt stigagjöfinni aftast:
Sérútbúnir bílar:
1. Jón Örn Ingileifsson - Kórdrengurinn - 2.730 stig
2. Ólafur Bragi Jónsson - Fjallarefurinn 2.568
3. Haukur Þorvaldsson - Torfan 2.515
4. Hafsteinn Þorvaldsson - Torfan 2.491
5. Leó Viðar Björnsson - Iron Maiden 2.487
6. Benedikt H. Sigfússon - Hlunkurinn 2.460
7. Björn Bragi Sævarsson - Heimasætan 2.200
8. Sigfús G. Benediktsson - Hlunkurinn 2.173
9. Jóhann Daði Pálmarsson - Land-Rover 2.073
10. Vignir R. Vignisson - Willys 1.937
11. Kristján F. Sæmundsson - Iron Maiden 1.869
12. Jóhann Rúnarsson - Trúðurinn 1.820
13. Ragnar Skúlason - Kórdrengurinn 1.642
14 Róbert Agnarsson - Heimasætan 1.580
15 Sigurður Reynisson - Land-Rover 1.242
Úrslit í flokki götubíla:
1. Steingrímur Bjarnason - Kölski 2.370 stig.
2. Páll Pálsson - Willys 2.242
3. Magnús Sigurðsson - Suzuki Jimmy 2.080
4. Ívar Guðmundsson - Pollabuxur 1.975
5. Ingólfur Guðvarðarson - Silver Power 1.835






