Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| AFP
| 22.8.2010
| 12:06
Öruggur sigur hjá Loeb
Frakkinn Sébastien Loeb vann öruggan sigur í Þýskalandsrallinu, sem lauk í dag. Var Loeb, sem er sexfaldur heimsmeistari í rallakstri, 51,3 sekúndum á undan Spánverjanum Dani Sordo en þeir aka báðir Citroën C4. Þriðji varð Frakkinn Sébastien Ogier, sem einnig ekur Citroën, en hann var 2,13 mínútum á eftir landa sínum.
Í næstu sætum voru Finninn Jari-Matti Latvala, Norðmaðurinnn Petter Solberg, Bretinn Matthew Wilson, Finninn Kimi
Räikkönen og Khalid Al Qassimi frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Loeb hefur nú 191 stig í stigakeppni ökumanna, Ogier 133, Latvala 117 og Solberg 100.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






