Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 10.9.2010
| 22:02
Solberg með forustu í Japan
Norski rallökumaðurinn Petter Solberg er með forustu í Japansrallinu eftir fyrsta keppnisdag. Solberg hefur 9,4 sekúndna forskot á Finnann Mikko Hirvonen og 21,4 sekúndna forskot á Frakkann Sébastien Ogier.
Í næstu sætum eru Finninn Jari-Matti Latvala, Spánverjinn bani Sordo og Frakkinn Sébastien Loeb, sem stefnir að sjöunda heimsmeistaratitli sínum í röð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






