Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 11.9.2010
| 16:46
Solberg með forustu
Norski rallökumaðurinn Petter Solberg hefur forustu eftir tvo keppnisdaga af þremur í Japansrallinu. Litlu munar þó á fremstu mönnum en Solberg er með 3,7 sekúndna forskot á Finnann Mikko Hirvonen og 5,4 sekúndna forskot á Frakkann Sébastien Ogier.
Í næsti sætum eru Spánverinn Dani Sordo, Finninn Jari-Matti Latvala, Frakkinn Sébastien Loeb, Norðmaðurinn Henning Solberg og Finninn Kimi Räikkönen.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






