Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 12.9.2010
| 8:44
Ogier sigraði í Japan
Franski rallökumaðurinn Sébastien Ogier fór með sigur af hólmi í Japansrallinu sem lauk í morgun. Er þetta annar sigur Ogiers á ferlinum. Hann náði forustunni af Norðmanninum Petter Solberg í morgun og lauk keppni 15,7 sekúndum á undan.
Finninn Jari-Matti Latvala varð þriðji, 26 sekúndum á eftir Ogier. Í næstu sætum voru Spánverinn Dani Sordo, Frakkinn Sébastien Loeb og Finninn Mikko Hirvonen.
Loeb hefur örugga forustu í stigakeppni ökumanna þegar þrjú mót eru eftir á keppnistímabilinu og bendir allt til þess að hann verði heimsmeistari sjöunda árið í röð. Loeb er með 210 stig, Ogier 158, Latvala 132, Solber 118, Sordo 107 og Hirvonen 94.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






