Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 25.9.2010
| 18:21
Í 7. sæti í ensku ralli
Systkinin Daníel og Ásta Sigurðarbörn urðu í 7. sæti í Trackrod rallinu í Yorkshire á Englandi í dag en 21 áhöfn lauk keppni.
Fyrsta sérleiðin var ekin í gærkvöldi og þá blés ekki sérlega byrlega fyrir systkininum því Daníel missti stjórn á MMC Evo X keppnisbílnum á þröngum sveitavegi og lenti á tré. Viðgerðarmenn gátu gert við skemmdirnar
í 45 mínotna viðgerðarhlé sem allar áhafnir höfðu eftir sérleiðina.
Bretarnir Gwyndaf Evans og Claire Mole sigruðu í keppninni í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






