Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 1.10.2010
| 17:42
Loeb með forustu í Frakklandi
Franski heimsmeistarinn í rallakstri, Sébastien Loeb, er með forustu eftir fyrsta keppnisdag í Frakklandsrallinu, sem fer fram í nágrenni Strassborgar um helgina. Loeb, sem varð heimsmeistari undanfarin sex ár, stefnir á sjöunda titilinn í ár.
Loeb náði besta tímanum á fjórum fyrstu sérleiðunum og er með 22,7 sekúndna forskot á Spánverjann Dani Sordo og 25,6 sekúndna forskot á Frakkann Sébastien Ogier. Allir aka þeir Citroën C4. Finninn Jari-Matti Latvala er fjórði í keppninni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






