Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 2.10.2010
| 16:56
Loeb gefur ekkert eftir
Sébastien Loeb gefur ekkert eftir í Frakklandsrallinu, sem fer fram um helgina, og er með örugga forustu eftir tvo keppnisdaga af þremur. Hann er jafnframt að tryggja sér sjöunda heimsmeistaratitil sinn í röð.
Loeb hefur nú 42,8 sekúndna forskot á Spánverjann Dani Sordo og 1,14 mínútna forskot á Norðmanninn Petter Solberg. Í næstu sætum eru Finnarnir Jari-Matti Latvala og Matti Hirvonen og Frakkinn Sébastien Ogier.
Loeb er með 201 stig í heimsmeistarakeppni ökumanna þegar þremur mótum er ólokið, Ogier er með 158 stig og Latvala 132.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






