Loeb sigraði í Frakklandi

Heimamenn í Oberhoffen sur Moder, skammt frá Haguenau, fagna Loeb. stækka

Heimamenn í Oberhoffen sur Moder, skammt frá Haguenau, fagna Loeb. Reuters

Frakkinn Sébastien Loeb vann Frakklandsrallið í dag og tryggði sér jafnframt sjöunda heimsmeistaratitilinn í rallakstri í röð. Hefur Loeb nú náð 60 stiga forskoti á næsta mann í stigakeppni ökumanna, landa sinn Sébastien Ogier, en aðeins tvö mót eru eftir á árinu.

„Það var frábært að sigra hérna," sagði Loeb en rallið fór fram á heimaslóðum hans. Loeb er frá Haguenau, skammt frá Strassborg en ekið var í nágrenni borgarinnar.

Loeb endaði 35,7 sekúndum á undan Spánverjanum Dani Sordo og 1,16 mínútum á undan Norðmanninum Petter Solberg. Í næstu sætum voru Finnarnir Jari-Matti Latvala og Mikko Hirvonen og Ogier var í 6. sæti.

Loeb er nú með 226 stig en Ogier 166. Latvala er í 3. sæti með 144 stig. 25 stig eru gefin fyrir sigur í rallkeppni.

Daniel Elena, aðstoðarökumaður, og Sébastien Loeb fagna sigri.

Daniel Elena, aðstoðarökumaður, og Sébastien Loeb fagna sigri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is