Jón Ingi Íslandsmeistari í Gokart
Jón Ingi Þorvaldsson vann Íslandsmeistaratitilinn í Gokart, öðru nafni körtukappakstri, um helgina. Keppnin gat vart verið tvísýnni því úrslitin í titilslagnum réðust ekki fyrr en í síðustu aksturslotu lokaumferðar Íslandsmótsins.
Íslandsmótið í körtukappakstri hafði ekki verið haldið frá 2006 en var endurvakið í ár fyrir tilstilli Gokartdeildar Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar. Mótið fór fram á Rallýkrossbrautinni við Krýsuvíkurveg og að venju var keppt í flokki bíla með 125cc Rotax vél.
Keppendur í Íslandsmótinu voru 7 talsins að þessu sinni og voru eknar þrjár 15 hringja aksturslotur á hverjum hinna þriggja keppnisdaga. Keppnisstjóri í lokaumferðinni var Ólafur Leósson.
Mótið hófst með tímatökum og varð Guðmundur Ingi Arnarsson hlutskarpastur með brautartímann 38,92 sek. Annar á ráslínu var Jón Ingi Þorvaldsson og þriðji Örn Þ. Kjærnested.
Guðmundur Ingi ók fumlaust í öllum þremur aksturslotum dagsins og hlaut því fullt hús stiga eða 75 stig. Gefin eru 25 stig fyrir fyrsta sæti, 20 stig fyrir annað sæti og 16 fyrir þriðja sæti í hverri aksturslotu fyrir sig.
Mjótt var á munum í stigakeppni til Íslandsmeistaratitils fyrir lokamótið og réðust úrslitin ekki fyrr en í síðustu aksturslotu, eins og fyrr segir. Baráttan um annað sætið í lokalotunni réði úrslitum.
Jón Ingi hélt öðru sætinu í fyrstu lotunni en eftir lítilsháttar akstursmistök í annarri aksturslotu missti hann það sæti í hendurnar á Erni Þ. Kjærnested. Jón Ingi náði síðan að hrifsa annað sætið aftur til baka í þriðju lotunni og nægði það honum til sigurs í Íslandsmótinu. Jón Ingi fékk 56 stig í lokaumferðinni og Örn 52 stig.
Lokastaða þriggja efstu ökumanna í keppni um Íslandsmeistaratitilinn 2010 er þessi:
| Röð | Ökumaður | Stig |
|---|---|---|
| 1. | Jón Ingi Þorvaldsson | 170 |
| 2. | Guðmundur Ingi Arnarson | 168 |
| 3. | Örn Þ. Kjærnested | 145 |
| 4. | Ragnar Skúlason | 126 |
| 5. | Ragnar Þór Arnljótsson | 109 |
| 6. | Helgi Berg Friðþjófsson | 41 |
| 7. | Björn Már Gíslason | 11 |
(Ragnar Skúlason tók ekki þátt í Íslandsmótinu, í töflunni eru birt samanlögð stig hans úr hverri umferð)








