Loeb með forustu á Spáni

Sébastien Loeb í Katalóníurallinu í dag. stækka

Sébastien Loeb í Katalóníurallinu í dag. Reuters

Franski heimsmeistarinn í rallakstri, Sébastien Loeb, er með forustu í Katalóníurallinu á Spáni eftir fyrsta keppnisdag. Hefur Loeb 3,8 sekúndna forskot á landa sinn, Sébastien Ogier, en Finninn Jari-Matti Latvala er þriðji.

Loeb hefur þegar tryggt sér heimsmeistaratitilinn í rallakstri, sjöunda árið í röð.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is