Íþróttir
|
Akstursíþróttir
| mbl
| 24.10.2010
| 12:42
Loeb vann Katalóníurallið
Frakkinn Sébastien Loeb vann Katalóníurallið, sem lauk á Spáni í dag. Loeb, sem þegar hafði tryggt sér heimsmeistaratitil ökumanna, sjöunda árið í röð, var 35,5 sekúndum á undan Norðmanninum Petter Solberg og 41,1 sekúndu á undan Spánverjanum Dani Sordo.
Í næstu sætum voru Finnarnir Jari-Matti Latvala og Mikko Hirvonen og Englendingurinn Matthew Wilson.
Þetta var 61. sigur Loebs og Daniels Elena, aðstoðarökumanns hans, í heimsmeistarakeppni í rallakstri en þeir setja heimsmet með hverjum sigri. Þeir höfðu forustu á Spáni frá fyrstu sérleiðinni á föstudagsmorguninn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






