Loeb með forustu í Wales

Sébastien Loeb. stækka

Sébastien Loeb. Reuters

Franski heimsmeistarinn Sébastien Loeb tók í dag forustu á fyrsta keppnisdegi Bretlandsrallsins, sem fer fram í Wales. Loeb hefur fyrir nokkru tryggt sér heimsmeistaratitilinn í ár, sjöunda árið í röð.

Finninn Jari-Matti Latvala hafði forstuna fyrri hluta dagsins en missti síðan flugið og er í 6. sæti, 1,07 mínútum á eftir Loeb. Norðmaðurinn Peter Solberg er í 2. sæti, 1,8 sekúndum á eftir Frakkanum, Finninn Mikko Hirvonen er þriðji, 42,2 sekúndum á eftir fyrsta sætinu og Spánverjinn Dani Sordo er fimmti.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is